Sjálfstæðisflokkurinn í Dalvíkurbyggð teflir fram lista sem samanstendur af ungu fólki sem er að stíga sín fyrstu skref í pólitík, yfir í reynslubolta sem hafa undanfarin kjörtímabil starfað í nefndum og sveitarstjórn.
Benedikt Snær Magnússon, oftast kallaður Bensi, er 36 ára og fæddur og uppalinn í breiðholtinu. Hann er austur húnvetningur, ættaður frá Snæringsstöðum í Svínadal. Bensi fluttist til Dalvíkurbyggðar árið 2013 og hefur síðan þá starfað í sjávarútvegi, lengst af á Fiskmarkaði Norðurlands. Með störfum sínum kláraði hann 2 ára stjórnendanámi stjórnendafræðslunnar, Þar sem hann lærði mikilvægi þjónustu, ábyrgðar, skýrra ákvarðana og þess að bregðast hratt við þörfum viðskiptavina og hefur það nýst honum vel í störfum á Fiskmarkaði Norðurlands. Bensi leiðir lista Sjálfstæðisflokksins í Dalvíkurbyggð, og með sína reynslu í farteskinu,mun það koma íbúum Dalvíkurbyggðar til góða komist hann í sveitarstjórn, enda lítur hann svo á að sveitarfélagið sé þjónusta við íbúa. Hann hvetur alla íbúa Dalvíkurbyggðar til að nýta kosningarétt sinn 16. maí. Hvert atkvæði skiptir máli.
Bessi Ragúels Víðisson er menntaður lögreglumaður og starfaði hjá lögreglunni á Norðurlandi Eystra í 6 ár. Hann stofnaði fyrirtækið Fincafresh árið 2022 með Borja López og hefur frá stofnun starfað sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Bessi er mikill liðsmaður enda reynslumaður úr fótboltanum þar sem hann hefur spilað víða og tók sæti í félagsmálaráði fyrir Sjálfstæðisflokkinn á síðasta ári og situr nú í fjölskylduráði.
Auður Olga Arnarsdóttir ólst upp á bænum Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi en hefur búið í Dalvíkurbyggð í 8 ár. Auður lauk Bachelor gráðu í viðskiptum og flutningsfræðum frá Royal Melbourne Institute of Technology í Melbourne í Ástralíu, en starfar nú heima við með bú og buru á Göngustöðum í Svarfaðardal. Pólitík hefur lengi átt hug Auðar og tók hún sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í síðustu Alþingiskosningum þar sem hún vermdi 13. sætið, einnig sat hún tímabundið í félagsmálaráði á síðasta ári, eða fram að fæðingarorlofi.
Sindri Ólafsson bætist í hóp Dalvíkinganna okkar, hann flaug úr hreiðrinu en kom aftur með atvinnuflugmannspróf og fjölskyldu í fararteskinu. Hann starfar í dag sem þyrluflugmaður hjá HeliAir Iceland, ásamt því að vera í slökkviliði Dalvíkur. Sindri hefur mikinn metnað og áhuga á því að gera Dalvíkurbyggð enn betri fyrir alla íbúa.
Birta Dís Jónsdóttir er innfæddur Dalvíkingur og flutti nýlega aftur heim eftir að hafa búið fyrir sunnan og klárað háskólanám. Birta Dís starfar sem hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku SAk og einnig sem sjúkraflutningamaður. Hún hefur mikinn áhuga á pólitík og brennur fyrir að Dalvíkurbyggð sé sterkt og samheldið sveitarfélag sem íbúar geta verið stoltir af að tilheyra.
Viktoría Katrín Oliversdóttir er fædd í Reykjavík en ólst upp á Dalvík frá 7 ára aldri og hlítur því fljótlega að geta farið að kalla sig Dalvíking. Hún lauk hárgreiðslunámi hjá Verkmenntaskólanum á Akureyri, en flutti til Noregs og kláraði þar samning. Dalvíkin átti alltaf stað í hjarta hennar og sneri hún aftur heim með fjölskyldu sína fyrir tæplega 2 árum, og starfar í dag sem hársnyrtir.
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson er fæddur og uppalinn á Hauganesi en býr nú á Dalvík. Hann lauk Skipstjórnarprófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík og hefur víðtæka reynslu úr sjávarútveginum bæði hér heima og erlendis. Hann starfaði lengst af sem skipstjóri og lauk starfsævi sinni sem hafnarvörður og síðar sem yfirhafnarvörður hjá Höfnum Dalvíkurbyggðar. Í dag er Gunnþór ellilífeyrisþegi og gerir út strandveiðibát á sumrin. Undanfarin 2 kjörtímabil hefur Gunnþór setið í skipulagsráði, dreifbýlisráði og veitu- og hafnarráði á vegum Sjálfstæðisflokksins. Gunnþór sat lengi í stjórn Lionsklúbbs Dalvíkur og situr nú í stjórn hjá Flökkurum, félagi húsbílaeiganda.
Gunnar Njáll ólst upp á Hauganesi en býr nú á Dalvík. Hann er menntaður rafiðnfræðingur og starfar nú sem eftirlitsmaður hjá BSI á Ísland. Í starfi hans skiptir máli að vera athugull, fylgja gæðastöðlum og finna raunhæfar lausnir sem mun án efa nýtast vel. Hann hefur stóra drauma fyrir Dalvíkurbyggð og vill sjá atvinnuuppbyggingu í nánu samstarfi við bæjarbúa og fyrirtæki. Skýr stefna og raunhæfar lausnir er það sem hann stendur fyrir.
Sheila Velázquez García ólst upp í Móstoles á Spáni en flutti til Dalvíkur fyrir 7 árum. Leið hennar lá til Dalvíkur þegar unnusti hennar Borja López fór að spila fótbolta með Dalvík/Reynir. Það má segja að þau hafi komið hingað tímabundið en þau féllu bæði fyrir samfélaginu og fallega bænum og úr varð að þau settust hér að. Á Spáni var Sheila á íþróttabraut og nýtir það núna í starfi sínu hjá íþróttamiðstöðinni í Dalvíkurbyggð, þar sem hún kennir meðal annars sundleikfimi.
Júlíus Magnússon er enn annar Dalvíkingurinn á listanum, en hann er það mikill Dalvíkingur að hann fæddist í heimahúsi á Dalvík. Júlíus er lærður matartæknir og tækniteiknari, og er nú sjálfstætt starfandi. Ásamt því er hann musterisriddari, formaður Ferðafélags Svarfdæla og í stjórn Stangveiðifélags Siglufjarðar. Hann hefur verið kjörinn fulltrúi síðustu 8 ár og starfað í flestum nefndum Dalvíkurbyggðar, svo hann býr yfir dýrmætri reynslu tengdri því.
Ívar Breki Benjamínsson er uppalinn Haugnesingur og hefur lokið BS í hagfræði frá HÍ sem og meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja frá HR. Ívar starfar nú sem sérfræðingur í Fyrirtækjaráðgjöf hjá PwC og hefur undanfarin ár starfað með ungum sjálfstæðismönnum á landsvísu. Hann hefur verið stoltur meðlimur í hinu virta stuðningsmannafélagi Dalvíkur/Reynis „Brúinn". Félagið hefur að vísu munað sinn fífil fegurri þó að enginn hafi útilokað endurkomu þess.
Selma Rut Guðmundsdóttir er fæddur og uppalinn Dalvíkingur og stundar um þessar mundir nám í hjúkrunarfræði við HA. Með námi starfar hún á Dalbæ dvalarheimili aldraðra og í félagsmiðstöðinni Dallas á Dalvík ásamt því að vera tímastarfsmaður á fæðingardeildinni á Akureyri. Selma Rut er í störfum sínum að styðja við fólk á öllum aldri, í leik og starfi og skilur þess vegna vel ólíkar þarfir mismunandi aldurshópa. Selma Rut elskar ekkert meira en að syngja og hefur undanfarin ár starfað með sönghópnum Rok.
Jed Jovannie C. Nuez er fæddur og uppalinn á Filippseyjum þar sem hann lærði hjúkrun og umönnun. Ásamt því hefur hann lokið starfsnámi í loftkælingum og rafmagni sem nýtist honum vel. Hann er maður margra hatta og starfar nú sem fiskvinnslumaður hjá Samherja, en einnig í hlutastörfum sem iðnaðarmaður og plötusnúður. Þegar Jed heimsækir heimaslóðirnar nýtir hann tækifærið til að láta gott af sér leiða og skipuleggur aðstoð fyrir fólk í neyð.
Freyr Antonsson er fæddur og uppalinn á Dalvík þar sem hann býr enn í dag. Hann lauk stúdentsprófi frá Verkmenntaskólanum á Akureyri og BS-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri. Freyr er framkvæmdastjóri og eigandi Arctic Sea Tours, hvalaskoðunarfyrirtækis á Dalvík. Samhliða því gegnir hann starfi forseta sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar. Hann hefur tekið virkan þátt í samfélagsmálum og situr í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, í stjórn Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða og á sæti í stafrænu ráði sambandsins. Þá er hann jafnframt formaður Miðgarðs akstursíþróttafélags og hefur áður setið í stjórn Flugþróunarsjóðs. Í frítíma sínum er Freyr áhugamaður um skauta á Stórhólstjörn og telur tækifæri og möguleika Dalvíkurbyggðar óþrjótandi. Mottó hans er: „Sættum okkur ekki við næst besta.“