Forsíða Pistlar Viðburðir Frambjóðendur Stefnumál Hvað höfum við gert?
Kosningar 16. maí 2026

Þetta berum
við fram

Fimm málaflokkar sem við setjum í forgang á næsta kjörtímabili með Dalvíkurbyggð og íbúana að leiðarljósi.

Fjármál og innviðir Börn og fjölskyldur Atvinna og nýsköpun Umhverfi og samgöngur Lýðræði og velferð
🏛️
1 Málaflokkur 1

Fjármál og innviðir

Sterkir innviðir og ábyrg fjármálastjórn eru grunnurinn að öllu öðru. Við ætlum að halda áfram að lækka álögur, fara vel með fjármuni sveitarfélagsins og fjárfesta í þeim innviðum sem skipta okkur öll máli.

„Hitaveitan á að vera í eigu sveitarfélagsins og við þurfum að hugsa vel um hana."

🎓
2 Málaflokkur 2

Börn og fjölskyldur

Börn eru framtíð Dalvíkurbyggðar. Við viljum samfélag sem hefur hag barna að leiðarljósi, með góðum leiksvæðum, öruggu umhverfi og tækifærum fyrir börn að dafna í heimabyggð.

„Grunnskólalóðin á Dalvík er fjölsóttasti leikvöllurinn í Dalvíkurbyggð. Við ætlum að klára að byggja upp leiksvæðið þar."

💼
3 Málaflokkur 3

Atvinna og nýsköpun

Öflugt atvinnulíf heldur fólki í sveitarfélaginu og laðar að nýtt fólk. Við viljum auðvelda fyrirtækjum að rísa, nýjum íbúum að setjast að og skapa rými fyrir nýsköpun og tækifæri.

„Við viljum einfalda líf fólks og bæta þjónustu. Það á líka við um þá sem reka fyrirtæki og byggja upp."

🌿
4 Málaflokkur 4

Umhverfi og samgöngur

Dalvíkurbyggð er gædd einstaklega fallegri náttúru. Við viljum tengja byggðakjarnana okkar betur saman, bæta umhverfið og sýna fordæmi um snyrtilegt og aðgengilegt sveitarfélag.

„Sveitarfélagið á að sýna fordæmi. Opin svæði og hafnarsvæði eiga að vera snyrtileg."

🤝
5 Málaflokkur 5

Lýðræði og velferð

Gott samfélag hlustar á íbúa sína. Við viljum opna ákvarðanatöku, betri samskipti milli sveitarfélags og íbúa, og þjónustu sem stendur undir væntingum fyrir alla aldurshópa.

„Við viljum auka ánægju íbúa. Það gerum við með því að hlusta á íbúa."