Ungur og kraftmikill listi

Sjálfstæðisflokkurinn í Dalvíkurbyggð teflir fram lista sem samanstendur af ungu fólki sem er að stíga sín fyrstu skref í pólitík, yfir í reynslubolta sem hafa undanfarin kjörtímabil starfað í nefndum og sveitarstjórn. Atvinnuferill frambjóðenda er fjölbreyttur og ég er mjög stoltur af þessum lista. Á honum er fólk sem hefur skoðanir á samfélaginu og nærumhverfi, og hafa vilja til að móta sína framtíð sjálf.

Við höfum undanfarið unnið að stefnuskrá okkar, héldum opinn fund á kosningamiðstöð okkar og höfum átt mjög góð samtöl við íbúa og atvinnurekendur undanfarið. Okkur er farið að hlakka mjög til að taka fleiri samtöl og höfum sett upp fundarröð næstu daga til að ræða stefnumál okkar, auk þess að heyra hvað brennur á íbúum fyrir þessar sveitarstjórnarkosningar, sem við getum svo í framhaldinu unnið með næstu 4 árin. Við munum á næstu dögum birta hér á síðunni greinar til að segja betur frá okkar helstu áherslumálum.

Samtal við íbúa

Við leggjum áherslu á vandaða og ábyrga vinnu, opið samtal og gott samstarf við íbúa. Okkur finnst að íbúar eigi að hafa rödd og hafa tækifæri til að hafa sitt að segja um ákvarðanir sem eru teknar. Við trúum því að með samvinnu og virðingu fyrir ólíkum sjónarmiðum sé hægt að ná árangri sem gagnast samfélaginu í heild.

„Gerum þetta á gleðinni" Það er slagorð okkar í kosningabaráttunni. Það á að vera gaman í pólitík.

Við stöndum frammi fyrir stórum ákvörðunum og þurfum íbúa í samráð og ákvarðanatöku með okkur. Hvort sem það er staðsetning á nýrri slökkvistöð, byggingu nýs byggðarsafns eða eitthvað annað, þá eiga hagsmunaaðilar og íbúar að hafa eitthvað um stóru málin að segja. Það er svo okkar kjörinna fulltrúa að taka afstöðu allra saman og taka faglega ákvörðun útfrá því.

Í stefnuskrá okkar segir meðal annars að við ætlum að bjóða uppá viðtalstíma við kjörna fulltrúa þar sem hægt er að koma ábendingum um það sem betur má fara beint til okkar. Við þurfum að loka gjá á milli íbúa og kjörinna fulltrúa, og það gerum við með samtali.

Hvað ber framtíðin í skauti sér?

Fyrir fjórum árum síðan settum við okkur 12 ára plan. Við höfum undanfarin 4 ár skipulagt mikið af lóðum, sem er nú orðin hilluvara hjá sveitarfélaginu. Áður var verið að búa til lóðir undir hús, því verktökum og einstaklingum þyrsti í að byggja. Nú er skipulagsvinnu lokið og hægt að fara að hefja uppbyggingu.

Við horfum björt til framtíðar, en innviðir þurfa að vera í lagi. Undanfarin ár höfum við verið að hlúa að hitaveitunni, og þurfum að halda því áfram. Meðal annars með endurnýjun búnaðar, og ekki síður þurfum við að auka vatnsöflun á neysluvatni. Sú vinna er nú þegar farin af stað.

Veitur Dalvíkurbyggðar eru ekki til sölu, og eiga að vera í eigu Dalvíkurbyggðar. Við sem samfélag þurfum að muna að veiturnar okkar eiga ekki að vera mjólkurkú, heldur eiga þær að standa undir rekstri og endurnýjun búnaðar. Annað er dulin skattlagning.